Gleðilega hátíð

Hér í Løgten erum við búin að eiga yndisleg jól og áramót. Á aðfangadag vorum við bara fjögur og ég held það sé bara í fyrsta skipti sem við erum ekki með neinum öðrum á aðfangadagskvöld. Það var bara mjög notalegt og maturinn tókst rosa vel. Allir fengu svo góðar gjafir og skemmtu sér vel við að opna þær fram eftir kvöldi Smile

newyearEftir það erum við búin að fara í alls kyns kaffi og matarboð og auðvitað halda nokkur sjálf líka Wink Maturinn alls staðar hefur verið þvílíkt góður og félagsskapurinn ekki síðri og í nokkur skipti hefur verið spilað Scrabble og Trivial langt fram á nótt. Á Gamlárskvöld vorum við upp í Hinnerup hjá Guðlaugu og Sissa, ásamt Hrönn og Kidda, og var kvöldið frábært. Allt rosa flott skreytt og maturinn geggjaður, horfðum svo á fréttaannál og Skaupið í beinni á netinu. Algjör snilld þessi tækni í dag. Svo var að sjálfsögðu farið út og gamla árinu skotið langt út í geim.

Við óskum ykkur öllum gleðilegs árs 2009, fullu af spennandi ævintýrum, ást, gleði og hamingju Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ

Gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár strumpa mín takk fyrir jólakortið ég sendi ekki út kort frekar en fyrri jól þannig þetta verður að duga sem jólakveðja til ykkar allra kossar og knús Helga Jó

Helga jóhanns (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 11:09

2 identicon

Hæ elskurnar mínar og gleðilegt nýtt ár. Vona að árið 2009 færi ykkur gleði og gæfu.

Knús og kossar frá mér og Thelmu 

Sigrún Gumm (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 15:20

3 Smámynd: Dísa Dóra

Gleðilegt ár frænka góð og megi það vera þér og þínum til gæfu

Dísa Dóra, 2.1.2009 kl. 15:27

4 Smámynd: Anna Sig.

Gleðileg jól og nýtt ár sömuleiðis ;)

Við fengum ekkert kort frá ykkur í ár, það hlýtur að hafa týnst í póstinum eða eitthvað en ég sá bara hjá m/p, flottur annáll! Samt skrítið að fá ekki kort frá Eydísi frænku, held að við höfum sent hvor annarri kort bara síðan ég man eftir mér! :)

Anna Sig., 2.1.2009 kl. 18:51

5 identicon

Gleðilegt nýtt ár snúllan mín!!

Sé að það hefur verið svaka stuð hjá ykkur eins og okkur  knús á liðið kveðja úr Grindó

Telma (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 21:45

6 identicon

Gleðilegt nýtt ár dúllurnar mínar og takk fyrir skemmtilegt ár 2008:) Takk fyrir jólakortið gaman að fá svona léttan annál fyrir árið 2008. Sé að þið hafið haft það gott og notalegt yfir hátíðirnar eins og við hér í Litla Koti, slappað af, borðað mikið mikið, hámað í ykkur nammi og svo framvegis...bara akkurat eins og það á að vera er þaggi ?

En nú er komið árið 2009 og ég held það sé þá bara orðið tímabært að fara að hittast, ég var einmitt að nefna það við Guðlaugu í gær hvort væri ekki komin tími á að við skísurnar hittumst og skellum okkur saman á kaffihús eða bara e-ð ...

Þanga til næst....

Ásta Björk (IP-tala skráð) 4.1.2009 kl. 10:03

7 identicon

Hæ elskurnar! Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla! Ég segi það sama og Anna, við fengum ekkert jólakort í ár frá ykkur? Þess er saknað mikið. Vonandi hefur pósturinn í DK ekki stungið því undir stól, he he he.

Linda Björk (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 15:33

8 Smámynd: Eydís Hauksdóttir

Þetta er alveg glatað ef jólakortin hafa glatast á leiðinni til klakans... úff, Anna mín og Linda... kannski ég verði bara að prófa að senda ykkur aftur!

Eydís Hauksdóttir, 6.1.2009 kl. 16:50

9 Smámynd: Hafdís Gunnarsdóttir

Sæl Eydís mín!

Og gleðilegt árið! Það er gott að heyra að þið hafið haft það gott um jólin. Við fengum þetta flotta jólakort frá ykkur svo að pósturinn kemst til Noregs Kannski að það verði tími til í ár að heimsækja ykkur, það er tími til kominn að við sjáum hvernig þið hafið það! Nema að þið séuð á leið til Noregs? Þið eruð hjartanlega velkomin til okkar Gunnar og Tómas biðja að heilsa ykkur!

Farðu nú vel með þig! Bið að heilsa strákunum þínum!

Knús frá frænku þinni í Norge

Hafdís Gunnarsdóttir, 10.1.2009 kl. 22:48

10 identicon

Betra seint en aldrei að setja komment :) við fengum þetta fína jólakort frá ykkur...svo pósturinn rataði allavega í Mosó.

Gleðilegt ár til ykkar frá okkur

hafið það gott elsku vinir

knús á línuna Anna Kristín og co

Anna Kristín og co (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 16:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Lífið í Løgten

Höfundur

Eydís Hauksdóttir
Eydís Hauksdóttir
Við hjónin búum ásamt sonum okkar tveim í Danmörku. Við fluttum til Árósa í júlí 2005 í kjölfarið af útskrift minni sem viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Ég byrjaði svo haustið 2005 í meistarnámi í lögum og viðskiptum Evrópusambandsins sem ég lauk í febrúar 2008. Nú vinn ég hjá indversku vindmyllufyrirtæki sem heitir Suzlon Wind Energy A/S. Hilmar er að vinna hjá frábæru fyrirtæki sem heitir Pressalit Care við að smíða sjúkrarúm og alls kyns rafknúna hluti fyrir fatlaða og einnig fyrir leikskóla. Synir okkar eru Eyþór Atli 11 ára fótboltakappi og Valur Snær 9 ára skáti.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • slum-dog-millionaire
  • slum-dog-millionaire
  • paskaegg
  • tehachapi wind farm
  • subway-eatfresh

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband