11.5.2007 | 19:11
Júróvision Eystri
Ég horfði með öðru auganu á Eurovision undankeppnina í gærkvöldi... þ.e.a.s. ég horfði á lag nr. 5 og lag nr. 12. Löndin mín tvö Ísland og Danmörk stóðu sig bara mjög vel og mér finnst danska lagið Drama Queen mjög gott (eiginlega betra en það íslenska). Svo hélt ég mér vakandi fram að úrslitunum til að sjá hvaða tíu lög kæmust í úrslitin, veit samt eiginlega ekki til hvers því þetta er hvort eð er orðin vonlaus barátta. Þessi Austur-Evrópu mafía er búin að hertaka keppnina svo það er ekkert gaman að horfa á þetta lengur. Hvað varð um gömlu góðu Evrópu þegar maður söng Gente di mare með Eros Ramazotti, Hold me now með Johnny Logan og J'aime la vie með Söndru Kim? Allt í einu er Evrópa orðin helmingi fleiri lönd en voru í henni fyrir nokkrum árum og maður þekkir hvorki haus né sporð á þessum löndum. Georgia, Belarus, Serbia-Monte Negro, hellúúú!!!
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:
Um bloggið
Lífið í Løgten
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er bara rugl elskan mín, því mér persónulega fannst Eiríkur Rauði bestur og hanna nú.
Hilmar Óskarsson (IP-tala skráð) 11.5.2007 kl. 19:37
Víí velkomin í íslenska bloggheima úllarinn minn (útlendingurinn minn)
Sammála með þessa a-júrókeppni.. hundfúlt bara!
Anna Sig., 12.5.2007 kl. 10:11
Til lukku með nýju síðuna, mér líst afar vel á hana! Eiki rúllaði þessu upp, vantaði bara 13 stig til að komast í aðalkeppnina EastEurovision! Það á bara að skipta þessu upp í West og East!
Sabbaló frænka (IP-tala skráð) 13.5.2007 kl. 12:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.